24.11.08 - 21:43
Fréttir í Nóvember
Tolli hefur nú lagt niður vinnustofu sína í Kaupmannahöfn og flutt allt sem þar var á vinnustofu sína í Hvalfirði.
Nýverið lauk hann sýningu í Magasin d´nord í Kaupmannahöfn en hún bar heitið Buddha abstract Buddha og gekk sérlega vel.
Um þessar mundir vinnur listamaðurinn að opnun sýningar í Gallery Listamenn en þar verða sýndar olíu og vatnslitamyndir undir þemanu Buddha. Innan tíðar verður einnig opnuð, í Reykjavík Art Gallery, sýning á yfir sjötíu landslagsmyndum og stendur sýningin til jóla. |
|