Ljúflingsljóð
24. ágúst til 2. september verður sýning í Kæliklefanum á Egilsstöðum.
Þetta er einkasýning Helgu og ætlum við að reyna að setja inn myndir af ferlinu fyrir austan ef aðstæður leyfa.
24.ágúst
Nú er opnunardagurinn runnin upp og allt klárt. Dagurinn tekinn frekar seint þar sem það eina sem var eftir að gera var að skipta um eina peru. Náðum í mömmu í flug um hádegi og fórum aftur niður á Högnastaði. Þar var slakað á og borðaðar kræsingar hjá Jónínu.
Fórum aftur í héraðið og vorum komin tímanlega fyrir opnun og nú var spenningurinn hvort einhver kæmi á opnunina. Ekki leið á löngu þar til fólk fór að streyma að og ljóst að það yrði fjölmennt. Þegar opnun á sýningunum fór fram þá voru saman komin fjöldi mans og á þeim tveim tímum sem var opið mættu rúmlega 100 mans á sýninguna.
Ekki var annað að heyra að allir væru ánægðir með verk Helgu enda varla hægt annað og svona þó ég segi sjálfur frá þá er þarna flott, vönduð og fagleg sýning á ferð.
Í næsta sal var opnuð myndlistasýning sem Ólafur og Vignir eru með en sú sýning heitir Le FOG (austfjarðarþokan), þessi sýning vakti mikla athygli okkar fyrir frumlegheit og húmor, þegar maður opnaði hurðina þá gekk maður inn í svarta þoku þar sem maður sá ekki handa sinna skil, fékk vasaljós og fór af stað inn að leita að myndunum. Flottar myndir hjá strákunum.

Mamma mætt á svæðið

Slakað á á Högnastöðum

Skvísurnar klárar í Héraðið

Rétt fyrir opnun, held að það séu nokkrar flugur í maganum

Karen Erla og Kristín, menningarvitar Héraðsmanna

Vignir, Helga, Karen Erla, Ólafur og Kristín

Hér er verið að opna sýninguna

Helga ásamt Krístínu Ísleifs og Helgu Alfreðs

Hér er verði á sýningunni Le FOG
23.ágúst
Dagur 3 að kveldi kominn og svo til allt klárt. Gengið ótrúlega vel og allir að verða sáttir við útkomuna.

Margar raddir (hvað sem það nú þíðir)

Mín bara nokkuð ánægð með sig og Brest

Brestu í allrí sínu veldi

Hugs komið á sinn stað

Maður fær að vera með á myndum með hinum fuglunum

Öldudans

Hestarnir horfa á öduna dansa

Allt orðið klárt

Já þar er smá munur frá fyrsta degi

Dagur að kveldi kominn
22.ágúst
Dagur tvö í ferlinu var langur og strangur. Þegar við komum var búið að taka allt út úr salnum þannig að allt var klárt til að byrja uppsetningu.
Þegar við fórum heim að degi loknum vorum við farin að sjá að þetta mun fara langt á fimmtudeginum.

Aðkoman dag tvö, allt orðið tómt og klárt

Helga að hugsa málið, það þarf að gera mikið að því á svona stundu

Verið að gera fuglana klára til flugs, Karen
Erla fylgist náið með

Stöplarnir mætir í hús

Já, það er hægt að nota karlinn í eitthvað

Já það er ekki sama hvernig þetta er allt saman

Öldudansinn kominn á sinn stað

Þetta smá tuttlast upp

Bjöllurnar hanga þarna, vonandi allan tímann
21. ágúst
Fyrsta aðkoma að salnum
Já var það hér sem sýningin á að vera
Þetta verður fínt þegar það verður búið að moka út
Já já það verður allt komið út um hádegi á morgun
Það þarf listamann til að sjá að hér sé flottur sýningarsalur á ferð
Spáð í spilin með Karen Erlu og hennar samstarfsmönnum,
frábærar móttökur og ljóst að það verður ekki málið að gera allt
klárt fyrir föstudaginn.
Já hvernig á ég nú að stilla upp í salinn?