Hún var heima hjá mömmu
sinni fyrsta árið en svo byrjaði hún hjá Fríðu dagmömmu í ágúst
2002. Haustið 2004 fékk hún pláss á leikskóla.
Ólöf datt á leikskólanum föstud. 7.
okt. 05. Hún fékk stóran skurð á hökuna og það þurfti að sauma 7 spor.
Hún var mjög dugleg, grét aðeins á meðan var verið að deyfa en svo
tók hún gleði sína á ný.
28. okt. 05: Ólöf var búin að fá leyfi til að gista
hjá Guðnýju. Við systur vorum í bænum með Ólöfu, Jóhann og Guðrúnu
Maríu til að kaupa afmælisgjöf fyrir Guðmund. Ólöf vildi kaupa sér
eitthvað bleikt, glitrandi glingur og ég sagði alltaf nei. Þá sneri
hún sér allt í einu að mér og sagði: Þú ræður nú eiginlega ekki yfir
mér núna. Síðan gekk hún til Guðnýjar og spurði hana hvort hún mætti
kaupa glingrið.
Jan.06: Við mæðgur vorum í Hagkaup að kaupa í matinn.
Ég var að leita að græmetisbuffum Sollu og spurði afgreiðslukonu
eftir þeim. Þá sagði Ólöf: ætlarðu að kaupa buff fyrir mig? Ég sagði
já og fyrir mig líka. Þá sagði Ólöf: en það passar ekki, þú ert með
of stóran haus! Hún var að meina höfuðklút (buff) með Sollu stirðu.
Ólöf er svo liðug að það er enginn vandi fyrir hana að nota ilina á
sér fyrir síma. Hér á myndinni er hún að þykjast tala í símann.
Ólöf prófaði að fara í fimleika en fannst ekkert gaman. Henni finnst
bara betra að æfa sig heima að fara í split og spíkat. Það nýjasta er að
reyna að standa á haus út á miðju gólfi.
Þarna heldur Ólöf á nýfæddum frænda sínum,
Sigurði Frey.
Þessi mynd var tekin
3. október.
Ólöf er byrjuð í fimleikum, hún segir að það sé stundum gaman en
stundum leiðinlegt. Ég held að henni þyki leiðinlegt að fá ekki að
stjórna neinu. Hmmm ... hvaðan kemur þessi stjórnunarárátta í þeim
systrum?
Nóv.06: Við mæðgur vorum að baka piparkökur í rólegheitum í
lok nóv. Við vorum að hlusta á tónlist og ég hummaði með. Þá segir
Ólöf allt í einu: Mamma geturðu hætt þessu? Ég svaraði: Finnst þér
ég ekki syngja vel? Þá segir Ólöf: Sko, þegar þú ert orðin fullorðin
og tekur þátt í Eurovision, þá vinnur þú ekki!
Þar með var það
útrætt og ég hætti auðvitað að syngja.
Fjölskylduvefur
Jóhanna - síðast uppfært
15. júlí 2008