| 17. desember 2005
38 krakkar tóku þátt í
Jólamóti TR á laugardaginn, þar af flestir af efnilegustu skákkrökkum
landsins. Tefldar voru sjö umferðir með svissnesku kerfi og var baráttan
gríðarlega hörð og jöfn á toppnum. Eftir fimm umferðir var Ingvar
Ásbjörnsson einn efstur með 5 vinninga, en Sverrir Þorgeirsson fylgdi
fast á eftir með 4,5 v. Fimm keppendur voru þá með 4 v. Í 6.
umferð mættust Ingvar og Sverrir, og hafði Sverrir betur. Hann tók þar
með forystu með 5,5 v., en Ingvar, Daði Ómarsson og Helgi Brynjarsson
fylgdu allir hálfum vinningi á eftir. Í lokaumferðinni mættust Ingvar og
Helgi annars vegar, og Sverrir og Daði hins vegar. Ingvar vann Helga, og
Daði vann Sverri, og því ljóst að Daði og Ingvar höfðu orðið efstir með
6 v. af 7. Daði var hærri á stigum og er því sigurvegar á Jólamóti
Taflfélags Reykjavíkur. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir sigraði í
stúlknaflokki, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir varð önnur og Tinna Kristín
Finnbogadóttir varð þriðja. Í U-10 flokknum sigraði Kristófer Gautason,
Daníel Hákon Friðgeirsson var annar og Dagur Kjartansson þriðji.
Heildarúrslitin eru svo hér:
Sæti|Nafn
|Vinn.|Bhlz|SBgr
1|Daði Ómarsson
|6.0 |31.5|25.5
2|Ingvar Ásbjörnsson
|6.0 |30.5|25.0
3|Sverrir Þorgeirsson
|5.5 |32.5|24.3
4|Matthías Pétursson
|5.5 |28.0|21.8
5|Vilhjálmur Pálmason
|5.0 |33.0|21.5
6|Guðmundur Kristinn Lee
|5.0 |28.5|17.5
7|Helgi Brynjarsson
|5.0 |28.0|17.0
8|Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir |4.5 |33.0|19.3
9|Kristján Ari Sigurðsson
|4.5 |25.5|13.8
10|Dagur Andri Friðgeirsson
|4.5 |25.5|12.8
11|Eiríkur Örn Brynjarsson
|4.5 |24.5|12.3
12|Jóhanna Björg Jóhannsdóttir |4.5
|21.5|11.8
13|Alexander Gautason
|4.0 |28.0|13.0
14|Hörður Aron Hauksson
|4.0 |28.0|12.0
15|Jökull Jóhannsson
|4.0 |26.5|13.5
16|Kristófer Gautason
|4.0 |25.5|13.5
17|Mikael Luis Gunnlaugsson
|4.0 |25.0|12.0
18|Svanberg Már Pálsson
|4.0 |25.0|12.0
19|Tinna Kristín Finnbogadóttir
|3.5 |26.5|8.3
20|Daníel Hákon Friðgeirsson
|3.5 |22.5|6.5
21|Páll Andrason
|3.0 |27.5|11.5
22|Ingimar Hrafn Antonsson
|3.0 |26.0|9.0
23|Guðni Fannar Kristjánsson
|3.0 |25.0|8.0
24|Stefanía Bergljót Stefánsdóttir |3.0
|25.0|7.0
25|Einar Ólafsson
|3.0 |23.0|5.5
26|Dagur Kjartansson
|3.0 |22.5|6.0
27|Benjamín Mark Reedman
|3.0 |22.5|6.0
28|Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir |3.0 |21.5|6.0
29|Friðrik Þjálfi Stefánsson
|3.0 |20.0|5.0
30|Sigurjón Ingi Sveinsson
|2.0 |22.0|2.0
31|Birkir Karl Sigurðsson
|2.0 |22.0|2.0
32|Vilhjálmur Þórhallsson
|2.0 |21.5|3.5
33|Jóhannes Guðmundsson
|2.0 |18.0|3.5
34|Arnar Geir Geirsson
|2.0 |17.0|1.0
35|Jón Kristján Sveinbjörnsson
|2.0 |16.0|1.5
36|Skúli Guðmundsson
|1.5 |20.5|2.3
37|Emilía María Kristjánsdóttir
|1.0 |15.0|0.8
38|Sigríður Björk Brynjarsdóttir
|0.0 |17.0|0.0
Skákstjórar voru Smári
Rafn Teitsson, Benedikt Jónasson, Ólafur S. Ásgrímsson og Óttar Felix
Hauksson. Einnig aðstoðaði Elín Guðjónsdóttir við framkvæmd mótsins.
Myndir úr mótinu
 |