Gunnarsholts         
» Inngangur
» Fréttir

» Minning
Ræktunin 
» Um okkur 
» Um Ræktunina
» Hafðu samband
» Væntanleg got
Okkar
» Hundar
»
Tíkur

» Hvolpar
» Myndasafn
 Schafer
» Tegundin
» Standard
» Saga
» Tenglar

» Feldhirða
»
Vörur
» Ýmislegt

» Gildewangen
Árangur
» Á sýningum
» Í vinnu
» Meistarar
Framundan Hrfí
» sýningar
» Annað
Gestabók
» Skoða Bókina
» Skrifa í bókina
 

 

 

17.12.2008

Jæja þetta gerðist hjá okkur á árinu :)

Sýningarnar  þrjár á árinu  gengu rosalega vel.

Einsog sjá má:

3x Besti rakki tegundar
2x Besti hundur tegundar
1x Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða
1x Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða
1x Besti hvolpur sýningar 4-6 mánaða
1x Þriðji besti hvolpur sýningar 6-9 mánaða
1x Besti öldungur tegundar
1x annar besti öldungur sýningar
2x Heiðursverðlaun fyrir Gunnarsholt´s ræktunarhóp
1x Heðursverðlaun fyrir  Gildewangen´s ræktunarhóp
1x annar besti ræktunarhópur sýningar

Eignuðumst tvo Íslenska meistara á árinu þá ISCH Gunnarsholt´s Joop og ISCH INTUCH IS-W 07 Gildewangen´s Istan.
Einn efnilegur strákur frá okkur fékk sitt fyrsta meistara stig hann Gunnarsholt´s Presley.
Gildewangen´s Istan bíður eftir staðfestingunni á Alþjóðlega meistaranum enn það kemur örugglega ekki fyrr enn eftir áramót.

Fullt af mjög efnilegurm hundum frá okkur  komu á sýningarnar þetta árið og vil ég þakka eigendum þeirra fyrir að koma og sýna og vera með í ræktunarhópnum okkar. Án þeirra væri þetta ekki hægt

Got á árinu 2008:

 Tvö got komu undan meistara Istan á árinu annað undan Sleggjubeina Esju 8 stykki og hitt undan innfluttri dömu frá Þýskalandi Indiru v. Dorahaus 5 stykki. Indira er einnig búin að taka Schh1 og kkl 1 einsog Istan og er þetta því í fyrsta sinn á Íslandi sem hvolpar koma undan  foreldrum sem lokið hafa þessum prófum frá Þýskalandi.

 Framtíðin okkar:

 Við héldum eftir tveimur tíkum undan honum Istan þeim Gunnarsholt´s Senjoritu og Gunnarsholt´s Angelitu. Við bindum miklar vonir við þessar dömur í framtíðinni enda undan gullmolanum okkar honum Istan sem klárlega hefur verið að géfa frábæra hunda.
Svo ætlum við  að para hana Gunnarsholt´s Queen með Istan í vor og er stefnan að eiga eina dömu þar líka. Mjög spennandi got þar á ferð.

Þess má geta að afkvæmi hans Istans  hafa verið að gera það mjög gott bæði i Noregi og Svíþjóð allt árið. Gildewangen´s Pluzz dóttir hans varð VA4 á Sænska Siegernum.

10.12.2008

Vegna forfalla er einn gullfallegur strákur til sölu undan Schh1 Indiru v. Dorahaus og SchH1 kkl1 Gildewangen´s Istan. Þetta er fjörugur og skemmtilegur hvolpur sem er mjög efnilegur til sýningar.
'Ahugasamir hafið samband við ræktandann í síma 
587-0158 eða 892-3905



 













09.12.2008

Komin er upp ný síða um feldhirðu á schafer. Bæði almenn umhirða á feldinum og undirbúningur fyrir sýningarnar. Vona að þið getið notað ykkur þennan fróðleik sem er eftir hana  Önnu Francescu Rósudóttur
.
Anna hefur tekið okkar hunda fyrir sýningar og gert þá enn glæsilegri. Árangurinn leynir sér ekki.

Sjá síðuna hér : FELDHIRÐA

07.12.2008

Meistarinn hann ISCH Gildewangen´s Viktor okkar er 10 ára í dag TIL HAMINGJU með daginn gamli minn. Viktor er búsettur í mjög góðu yfirlæti hjá henni Báru Borg og fjölskyldu fyrir vestan. Viktor er upptekinn við að vera fjárbóndi i ellinni og enn í góðum gír , kominn með nokkur grá hár enn hress að vanda. Það er nú ekki langt síðan að Viktor kom á sýningu. Hann mætti 2007 og varð annar besti öldungur sýningar. Heilsuhraustur og skemmtilegur hundur sem skilaði því svo sannarlega i okkar ræktun .

Viktor að leika daginn sem hann kom til okkar  Hann elskaði að kúra i sófanum :)

02.12.2008

Hún Anna okkar kom um helgina og baðaði og klippti haug af cocker sem komu í heimsókn. Bara stuð á þessum bæ. Anna tók nokkrar myndir af Anelitu og hér er ein svaka flott af henni. Angelita er aðeins 15 vikna og klárlega mjög efnilegt módel :) Meir af þessum myndum koma innan tíðar.
Takk Anna mín enn og aftur þú ert snillingur á myndavélina *knús*


Myndir:Anna Francesca

01.12.2008

Hann Istan okkar á afmæli i dag ...7 ára gamall höfðingi sem hefur aldrei verið flotttari. Sumir eldast betur enn aðrir :) Til hamingju með daginn gamli

23.11.2008

Búið af uppfæra væntanleg got síðunna . Myndir af hvolpunum undan Indiru og Istan .
Einnig er væntanleg spennandi got undan Tveimur Meisturum Istan og ISCH INTUCH Sleggjubeina Argintætu Sjá nánar hér

08.11.2008

Settum inn nýjar myndir inn af litlu Angelitu. Hún dafnar mjög vel og er ekkert smá falleg 13 vikna dama. Myndir hér

 07.11.2008

Hvolparnir undan Gunnarsholt´s Enólu og Gildewangen´s Istans eru 1.árs í dag. Til hamingju með daginn öll sömul.
Afmælis börnin eru:

Gunnarsholts Sabela
Gunnarsholts Santos
Gunnarsholts Senjor
Gunnarsholts Senjora
Gunnarsholts Senjorita

05.11.2008

Varð að deila þessu með ykkur. Það fór tík frá okkur til Bandaríkjana  1999. Svo höfum við lítið frétt af henni þangað til nú. Fékk senda mynd af dömuni og fjölskyldu hennar. Þau er alveg rosalega ánægð með hana og hefur hún alltaf verið heilsuhraust og skemmtilegur hundur. Þau eru að biðja um annan hund frá okkur  til að hafa með þeirri gömlu :)
Conely fjölskyldan ásamt Gunnarsholt´s Conley Gudrun
Hún er undan hundunum okkar IS-W 98 IS-W 99 INTUCH ISCH Gildewangen´s Aramis og INTUCH ISCH Xandra vom Laacher-haus

 

 

 

 

 

 

 

 

 




 

 

04.11.2008

Hvolparnir undan  Sleggjubeina Esju og Gildewangen´s Istan eru nú allir komnir á heimili. 'Oskum við nýjum eigendum innilega til hamingju með hvolpana og vonum að framtíðinn sé björt. Þeir sem hafa áhuga á að fá hvolp undan Istan endilega hafið samband .

Nöfn hvolpana og linkur á ættartölu þeirra:

Gunnarsholts Ambros
Gunnarsholts Angelita
Gunnarsholts Apollo
Gunnarsholts Argos
Gunnarsholts Aristo
Gunnarsholts Arstan
Gunnarsholts Astro
Gunnarsholts Atlas

02.11.2008

Gunnarsholt´s Queen fór í sporpróf í dag og náði spor 1. Anna innilega til hamingju með drottninguna hún klikkar ekki :)

23.10.2008

Búið er að Mjaðmamynda Gunnarsholt´s Queen og er hún HD frí .Von er á ED niðurstöðunum næstu daga.
Gunnarsholts Quene var einnig að fá niðurstöður sínar og er HD/ED frí

12.10.2008

Jæja þá er nýja prinsessan komin til okkar. Hún hefur fengið nafnið Gunnarsholt´s Angelita. Hún er undan Istan okkar og Sleggjubeina Esju.
Eiður Smári elskar hana og Istan finnst hún i lagi þó hún sé bara krakka vitleysingur. Angelita er sannfærð um að þeir eru skemmtilegastir :)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

29.08.2008

Alþjóðleg hundasýning var um helgina og er óhætt að segja að okkur gékk frábærlega og það hjá dómara sem sérhæfir sig  í að dæma schafer Fredrik Norgren

Besti rakki og jafnframt besti hundur tegundar varð hann Istan okkar. Hann fékk  EXELENT og sitt síðasta cacib ,er því að verða Alþjóðlegur meistari(bíðum eftir staðfestingunni)

Ungliðinn hann Gunnarsholt´s Ramon fékk very good, heiðursverðlaun og fyrsta sæti i ungliðaflokki rakkar.

Gunnarsholt´s Presley  fékk  EXELENT, fyrsta meistarastigið sitt og sigraði i opnum flokki rakkar og endaði sem 3 besti rakki.

Ungliðinn Gunnarsholt´s Senjorita fékk very good,heiðursverðlaun og fyrsta sæti i ungliða flokki tíkur.

Unghundurinn Gunnarsholt´s Quene gékk mjög vel lika og fékk very good.

Við sýndum svo ræktunarhóp með þesum gullfalegu hundurm og fengum heiðursverðlaun,EXELENT og urðum
annar besti ræktunarhópur sýningar(sunnudag)Er þetta i 17 skipti sem Gunnarsholt´s ræktun fær heiðursverðlaun.

Hér er umsögnin um Gunnarsholt´s ræktun frá honum Fredrik Norgren:

Two fathers and three mothers.
Very even groub with clear clear familie type.
Good bodycrop, Dark eyes, good bones,
Strong back. The hocks could be firmer.
All in good movment, very good temprament.
Congratulations to a very good breeding results
EXELENT


Takk öll fyrir frábæra sýningu og sérstaklega Takk Anna mín fyrir alla hjálpina og gera alla svona fína og flotta.

21.09.2008
Anna okkar kom baðaði og blés hann Istan i gær.
Eftir baðið var farið út og teknar nokkrar myndir af prinsinum. Bara flottur sá gamli.
Takk Anna mín fyrir hjálpina þú ert snillingur með myndavélina og blásarann :

08.09.2008

Tveir nýjir meistarar hjá okkur.

Gildewangen´s Istan og Gunnarsholt´s Joop hafa fengið meistaranafnbótina.

ISCH Gildewangen´s Istan og Sleggjubeina Z Esja hafa eignast 8 myndarlega hvolpa sjá nánar hér

Búið er að para Istan við innflutta tík frá Þýskalandi sem einnig er schH1 og kkl1

Dóttir Istans  Gildewangen´s Pluzz varð VA4 á sænska siegershowinu 2008 sjá nánar á Gildewangen´s síðunni

 

 

 

 

 

 



Gunnarsholt´s Schafer ræktun
© Allur réttur áskilinn.