Tvær
breytingar á sýningareglum taka gildi 1. janúar 2009. Þær eru
eftirfarandi:
II.
kafli, Sýningaskilmálar, 2. gr, fyrri mgr, breytist þannig, að í
stað þess að kveða á um að sýnandi hunds verði að vera fullra 13
ára, skal hann að lágmarki verða 13. ára á árinu. Fer þá saman
aldurslágmark sýnenda og eldri hóps ungra sýnenda, sbr. ákvæði XII
kafla um unga sýnendur: "Aldurslágmark sýnanda hunds skal vera
13. ára (ártal gildir). Í dómi skal sýninganúmer hunds vera skýrt á
hægri hlið sýnanda."
XIV.
kafli, Einkunna- og verðlaunaborðar, borðar fyrir einkunnir
Excellent, Very Good, Good og Sufficient, breytast þannig að einn
litur verður fyrir hverja einkunn:
Excellent / 1. sæti: rauður borði
Very Good / 2. sæti: blár borði
Good / 3. sæti: gulur borði
Sufficient / 4. sæti: grænn borði.
Samræming á sýningareglum hundaræktarfélaga Norðurlandanna er nú í
fullum gangi og gera má ráð fyrir frekari breytingum á reglum okkar
þegar henni lýkur. Ekki er þó gert ráð fyrir neinum
grundvallarbreytingum á núverandi sýningakerfi. Þess má geta, að
aðrar Norðurlandaþjóðir hyggjast taka upp FCI-einkunnir (Excellent,
Very Good osfmv.) og haga borðalitum þannig að einn litur sé fyrir
hverja einkunn.
Þá
hefur sýninganefnd, í samstarfi við stjórn HRFÍ, ákveðið að draga
saman seglin í kostnaði við sýningar og hætta að veita hvítar og
bláar rósettur fyrir alþjóðlegt meistarastig annars vegar og BHT
II sæti hins vegar. Þess í stað verður hægt að kaupa rósetturnar á
kostnaðarverði á bás HRFÍ á sýningum eða á skrifstofu félagsins,
eftir sýningar, gegn framvísun umsagnarblaðs. Eftir sem áður verða
veittar rósettur fyrir besta hund tegundar og í úrslitum sýningar.
Í
öðrum fréttum má nefna, að þann 1. janúar 2009 taka í gildi nýjar
reglur hjá aþjóðasamtökum hundaræktarfélaga, FCI, um aþjóðlegan
sýningameistaratitil (C.I.E) fyrir þau hundakyn sem sett eru undir
vinnupróf í FCI Breeds Nomenclature. Til að eiga kost á
þessum nýja titli, þurfa hundar af viðkomandi kynjum að hafa hlotið
fjögur aþjóðleg meistarastig (CACIB) í a.m.k. þremur löndum og undir
þremur dómurum. Eitt ár og einn dagur þarf að lágmarki að líða á
milli fyrsta og síðasta stigs. Stjórn HRFÍ hefur sótt um að fá sömu
undanþágu vegna þessa titils og það hefur vegna IntCh titils; þ.e.
að íslenskir hundar geti safnað stigunum hér á Íslandi, en frá
þremur dómurum sem koma frá amk. þremur mismunandi löndum. FCI hefur
einnig óskað eftir því að skammstafanir fyrir titla verði samræmdar
á eftirfarandi hátt: C.I.B. (Alþjóðlegur fegurðarmeistari) -
samsvarar núverandi INTCH / INTUCH skammstöfun C.I.T. (Alþjóðlegur
vinnumeistari) C.I.E. (Alþjóðlegur sýningameistari) - nýi titillinn,
sbr. að ofan.
Sýningastjórn óskar félagsmönnum gleðilegrar hátíðar og þakkar
starfsfólki sýninga, sýnendum og öðrum sem að sýningum hafa komið á
árinu, kærlega fyrir samstarfið