Vefverslun min Ljodin min
 
Home
Gler 2007
Glerhusid okkar
Ljodin min

 

Ljóð sem ég samdi
2000 - 2004.

  • Athugaðu!!
    Brjóttu af þér brotalöm
    beiskju sálar vanda.
    Útkoman er alltaf söm
    athöfn eigin handa.
     

  • Þrá!!
    Þegar hugsa ég um þig
    er sem ekkert plagi mig.
    Og mig langar strax til þín
    að kúra hjá þér ástin min.
     

  • Augun!!
    Augu þín sál mína seiða
    senda mér krafta og þor
    taka úr mér allan leiða
    Lostfull stíg ég dansspor.
     

  • Löngun!!
    Nú vil ég með þér vaka
    vetrarnótt rökkurljósa.
    Anda ilmi þínum
    finna eldin bjarta
    í augum þér & örmum
    bergja í blómaangan
    bikar kossa þinna.
     

  • Til þín!!
    Alsæl forðum undi ég eina nótt hjá þér
    og okkar ævintýri enginn tekur frá mér
    mér gleði þína gafstu.
    Þú gafst mér eldinn bjarta,
    ástir þínar allar og auð þíns karla hjarta
     

  • Um Mig!!
    Langar nætur líða,
    ljósir dagar renna
    ástir þínar ennþá
    í æðum mínum brenna,
    er gleði mín er gengin
    grætur nóttin svarta.
    Í gröf þinni munu grafnir
    gimsteinar míns hjarta.


Hugurinn!!
Fram ég flæði til gleðisýnar,
hugur minn undraverður er
fyllti áann sannleiksolíur fínar,
svo glóandi áfram hann fer

Malorca ferðin!!
Rassrauður varann um garðin að rölta,
Álitinn Indjani af flestum hann var,
Cervesa drakkann í sundi að brölta.
Lagðist svo óðfluga upp við einn bar.


Um Munda!!
Kallaður varann king of tanga,
kíldur sprangaði um ströndina alla.
Öskrandi öldurnar tókann til fanga,
gellurnar óðfluga tóku að falla.


Takk móðir mín!!
Yndislega móðir mín sem farin ert mér frá,
sporin þín hér eru allt í kring um mig.
ég stíg í þau stundum, þakklát er ég þá.
mikið vil ég taka til fyrirmyndar þig.


Ó Mamma mín!!
Alltaf varstu hlý og alla menn u virtir.
kenndir að allir ættu sama rétt hér á jörð.
Er inn þú komst  í hús, allt þá upp byrti.
& fjölskyldu þína  ófstu sterka trúargjörð.

Vina mín & móðir!!
Daufir eru dagarnir sumir hér án þín.
þá hugsa ég mig inní hlýja faðminn þinn.
Mikið er ég þakklát að þú ert móðir min,
þá ylur um mig flæðir í hvert eitt sinn.
Bráðum við hittumst kæra móðir mín.
i himininn þú sagðir mér að koma til þín.
fræddir mig svo mikið frá þinni dýrðar sýn.
þar fagrir englar syngja við öll elskuleg & fín.

Home Gler 2007 Glerhusid okkar Ljodin min

This site was last updated 12/16/06