Vallanes í Skagafirði

Brot af sögu hrossaræktarinnar þar

Vallanes er í Hólminum svokölluðum í Skagafirði og hét áður Skinþúfa en Valdimar Guðmundsson frá Ytra-Vallholti settist þar að og skírði bæinn upp og nefndi Vallanes. Valdimar var framsýnn atorkumaður og fékk strax áhuga fyrir að rækta viljug og snerpumikil hross, en áhugi flestra fyrir hrossarækt á þessum árum beindist að vinnuhestum.

1903 fékk Valdimar styrk frá landsstjórninni til ræktunar reiðhesta og mun þetta vera fyrsta reiðhestaræktun í landinu sem veittur er peningalegur stuðningur. Valdimar keypti tvo stóðhesta frá Heiði í Gönguskörðum og var annar þeirra fífilbleikur og hefur þessi litur verið ráðandi í Vallanesstóðinu allt til þessa dags ásamt mjög dökkrauðum lit.

Handrit Valdimars í Vallanesi þar sem hann segir frá kaupunum á bleika stóðhestinum á heiði

 

Snemma fóru þeir er áhuga höfðu á reiðhestum að líta til Vallaness og hefur í gegnum áratugina og í raun nú í 100 ár verið seldur ótrúlegur fjöldi hrossa og hafa víða framræktast með miklum ágætum. Landsfrægt var þegar þeir feðgar Eiríkur og Valdimar sonur hans héldu uppboð í Grófargilsrétt á hrossum á miðju sumri og seldu 106 hross sama daginn.

Frá upphafi hafa verið haldnar dagbækur og skýrslur um fædd folöld og ættir þeirra og er það sennilega með eindæmum að hægt sé að fletta upp ættum 100 ár aftur í tímann.

Margir frægir garpar hafa komið frá Vallanesi og sést á keppnisbrautunum og einnig er gaman að líta til frægra stóðhesta sem rekja má til Vallaness eins og t.d. Svips frá Laugalandi sem var dóttursonur Töltu frá Vallanesi, Orion frá Litla-Bergi er undan Bliku frá Vallanesi og hún átti fleiri 1. verðlauna syni. Hrossin í Sveinatungu eru af Vallaneskyni. Bjarkar á Tóftum hefur notað og notar enn hross frá Vallanesi í sinni ræktun og þannig mætti lengi telja.

Frægir gæðingar sem skarað hafa fram úr eru t.d. Hringur Þórarins á Tjörn í Svarfaðardal, sem hestamannafélagið þar heitir eftir, Þumall Jóhanns í Kápunni sem kallaður var og var frægur hestur í Reykjavík. Sámur Reynis Hjartarsonar sem náði því að hljóta hæstan dóm í A-flokki á Hellu 1986 8.70 og hlaut einnig 8.63 í kynbótadómi. Tryggur Baldvins A. Guðlaugssonar varð Íslandsmeistari í tölti.